Auglżsing

Dagar ķ nęsta leik

Um okkur!!

  • Nafn: Knattspyrnuliš Póstsins
  • Stašur: Reykjavķk

Teljari

  • Heimsóknir ķ dag: ...
  • Žennan mįnuš: ...
  • Frį upphafi: ...

Carlsbergdeildin

Lišin sem eru ķ sama rišli og viš ķ vetur

Könnun

Komumst viš upp śr rišlinum ķ sumar?

Gerast ašdįandi lišsins į Facebook

Leit

Pósturinn 0 - Cambodia 2. Nęsti leikur

05. jślķ 2011 klukkan 09:56
Ég veit ekki alveg hvernig þessi leikur spilaðist en áhugasamir hafi samband við Konna!! ;)

Næsti leikur hjá okkur er á móti Rc Collins og eru þeir búnir að vinna 2 leiki í sumar annað en við.

Hefjast leikar kl. 21 og er mæting kl. 20:30 hægt er að staðfesta mætingu annaðhvort með SMS skilaboðum eða hérna:

http://teamfinder.org/games/e015dcde322d4b0f1ddf

Nú er um að gera að hysja upp um sig brækurnar og klára þessa fjóra leiki sem eftir eru með sigrum og sýnar þar með að við eigum heima í efri hluta riðilsins..

Læt hér fylgja með smá PEPP UPP



Albert kveður.. Ætlar að skora á miðvikudaginn!!
Knattspyrnuliš Póstsins
3 athugasemdir

Pósturinn 0 - Hómer 6. Nęsti leikur

09. jśnķ 2011 klukkan 10:32
Bikarævintýri okkar lauk með 6-0 tapi á móti ellismellunum í Hómer. Fleiri orð verða ekki sögð um þennan leik. :)

Næsti leikur hjá okkur er á morgun (föstudag) á móti liði FC Cambodiu.

Hefst leikurinn klukkan 20:00 og er mæting klukkan 19:30.

Tilkynnið mætingu hérna: http://teamfinder.org/games/89a885799bf25bf3814b

Hafa leikir FC Cambodiu farið svona:

FC Cambodia-KF Mjöðm       0-0
Hvatberar-FC Cambodia        3-1
FC Cambodia-FC Mordor      11-0
FC Cambodia-Eimreiðin         3-0
FC Cambodia-Innri fegurð    13-0 Bikarleikur.

Eins og sést þá eru þeir bara búnir að fá á sig 3 mörk í sumar. :S

Má búast við því að við verðum með frekar vængbrotið lið þar sem Albert, Sjonni, Snorri og Simmi eru allir að gera eitthvað annað. :(

Konni kveður á fimmtudegi, tilbúinn að jarða einhverja Cambodiumenn. :)

Knattspyrnuliš Póstsins
Engin athugasemd

Pósturinn 0 - FcTjackur 1 og nęsti leikur!!

03. jśnķ 2011 klukkan 11:15

Það var sárt að tapa síðasta leik en við gleymum honum bara og einbeitum okkur að næsta leik sem er bikarleikur á móti Hómer.

Þeir líta allir svona út..



Staðfestið mætingu hér:
http://teamfinder.org/games/1ec60b44b5aba585bfc5

Albert kveður tilbúinn að slátra Hómer.
Knattspyrnuliš Póstsins
1 athugasemd

Pósturinn 1 - KF Frómas 3, nęsti leikur.

24. maķ 2011 klukkan 08:50
Leikurinn á móti KF Frómas var rusl og endaði 1-3 fyrir Frómasinu.
Eina sem ég nenni að skrifa um þennan leik er að Arnar skoraði eina mark okkar í leiknum.

Næsti leikur hjá okkur er á móti FC Tjack.

Sitja þeir á topp riðilsins með fullt hús stiga og markatöluna 12-2.

Úrslitin hjá þeim í sumar hafa verið eftirfarandi:
FC Tjackur - Hvatberar 4-1
FC Tjackur - FC Mordor 6-1
Eimreiðin - FC Tjackur 0-2

Er leikurinn á morgun (miðvikudag) og byrjar hann klukkan 21:00, mæting klukkan 20:30.

Staðfestið mætingu hérna:
http://teamfinder.org/games/ea985ff6a33ceaff4f2b

Þess má til gamans geta að Matti gamla póstlegend spilar með þessu liði og held ég fast í vonina um að hann taki nokkur flott múv eins og hann gerði þegar hann spilaði með okkur. :)

Annars er þetta möst win leikur ef við ætlum okkar að eiga einhverja möguleika á að komast upp úr riðlinum í lok sumarsins.



Konni kveður á þriðjudegi, tilbúinn í leik á morgun.
Knattspyrnuliš Póstsins
Engin athugasemd

Pósturinn 5 - Ufsinn 2, nęsti leikur.

16. maķ 2011 klukkan 14:27
Fyrsti sigur sumarsins er staðreynd. :)

5-2 sigur á móti gamla stórveldinu Ufsanum í 64. liða bikarkeppni Carlsberg. 

Markaskorarar í leiknum voru:
Sjonni
Orri
Arnar
Snorri
Albert


Það var allt annað að sjá liðið í þessum leik en í tapleiknum á móti Black Barböru.

Fyrstu sex mínútur leiksins einkenndust af skothríð á mark Ufsans. En gegn gangi leiksins komust þeir 1-0 yfir með frekar klaufalegu marki. Eftir það hrökk gamla póstvélin í gang og setti tvö mörk með stuttu millibili á Ufsann og komu þrjú kvikindi í viðbót í seinni hálfleik. Tókst Ufsanum aðeins að klóra í bakkann með síðustu spyrnu leiksins og voru lokatölur eins og fyrr var komið fram 5-2.

Aldrei þessu vant komumst við áfram í bikarnum eftir Eurovisionkvöld. :)

Ef ég ætti að velja MVP (Most Valuable Player) leiksins þá yrði Simmi fyrir valinu. Lagði hann upp tvö mörk og átti nokkur villt en góð hlaup fram úr vörninni. :)

Endilega kommentið ef þið eruð ósammála með MVP-ið. :)

Vangaveltur eftir leik:
  • Er Arnar búinn að finna markaskónna?
  • Getur einhver toppað fallið hans Arnars?
  • Er þetta sumar Póstsins í bikarkeppninni?
  • Tekst Orra bara að skora úr ólíklegustu færum?
  • Úr hverju eru lappirnar á Orra og Sjonna?
Nú verður hver og einn að svara þessum spurningum. :)

Næsti leikur hjá okkur er síðan á morgun. Er hann á móti liði KF Frómas sem vann bæði bikar og deild í hittifyrra og vann deildina fyrir þremur árum.

Hefst leikurinn klukkan 20:00 og er mæting 19:30.

Hafa úrslitin hjá þeim verið svona í sumar.

FC Mordor-KF Frómas 0-2
KF Frómas-Eimreiðin   0-0

Staðfestið mætingu hér:
http://teamfinder.org/games/c836fca205d10d9770c6

Nú er bara um að gera að halda póstvélinni vel smurðri og koma dýrvitlausir í leikinn á morgun og ná fyrsta sigrinum í riðlinum í sumar.

Set hérna inn mynd af KF Frómas og bið ég menn um sofa með þessa mynd á koddanum sínum í nótt, það ætti að ná upp einbeitingunni hjá okkur. :)



Konni kveður á mánudegi ánægður eftir vel heppnaðan leik í gær.
Knattspyrnuliš Póstsins
1 athugasemd

Pósturinn 1 - Black Barbara 5 og nęsti leikur.

12. maķ 2011 klukkan 10:58
Veit ekki alveg hvað hægt er að segja um síðasta leik hjá okkur. Öttum við kappi við lið Black Barböru.com og má með sanni segja að þeir hreinlega rústuðu okkur!

Verða ekki fleiri orð rituð um þennan leik. :)

Næsti leikur hjá okkur er frestaður bikarleikur á móti Ufsanum og verður hann spilaður á sunnudaginn klukkan 19:00.

Við látum sko enga Eurovisionþynnku eyðileggja mætinguna í leikinn. :)

Staðfestið mætingu hérna: http://teamfinder.org/games/c7764acda518b625fcf6

Ufsinn er gamalt utandeildarlið sem fór með sigur af hólmi held ég nokkrum sinnum í utandeildinni hérna back in the days. Hættu þeir í utandeildinni sökum elli, var það árið 2001. :)

Úrslitin hjá þeim í sumar eru eftirfarandi:
Achilles United-Ufsinn  1-7
Hómer-Ufsinn             0-1

Núna er tíminn til að rífa sig upp á ras****** eftir hörmulega byrjun í sumar og sýna liðum að við getum eitthvað í fótbolta, annað en við sýndu í síðasta leik. :)

Grunar mig að menn hafi ekki verið að horfa á peppvideóið okkar fyrir leiki, þannig ég pósta því hérna aftur. :)



Konni kveður á fimmtudegi.
Knattspyrnuliš Póstsins
1 athugasemd

Annar leikur.

04. maķ 2011 klukkan 09:39
Þar sem bikarleiknum okkar var frestað síðasta sunnudag til 15.maí er komið að leik númer tvö hjá okkur í sumar.

Er andstæðingurinn að þessu sinni vinir okkar í Black Barböru. Er liðið kennt við þá fögru síðu www.blackbarbara.com og hvet ég alla til að skoða þessa síðu. Þar má meðal annars sjá líklegt byrjunarlið og flottar myndir frá fyrri leikjum liðsins. :)

Unnu þeir fyrsta leikinn sinn í sumar 9-0 á móti nýliðunum í RC Rollins.

Höfum við staðið okkur ágætlega á móti þeim í gegnum tíðina. Við höfum unnið alla leikina á móti þeim nema leikinn í vetrardeildinni núna síðast. En þar einmitt flengdu þeir okkur 5-2, það er eitthvað sem við ætlum ekki að láta gerast aftur. :)

Er leikurinn á föstudaginn og hefst hann stundvíslega klukkan 20:00, mæting klukkan 19:30.

Staðfestið mætingu hér:
http://teamfinder.org/games/f24af958c2c595a746eb


Sjonni mun dansa við þetta lag fyrir leik á föstudaginn. :)



Konni kveður á miðvikudegi fullur tilhlökkunar fyrir föstudaginn. :)
Knattspyrnuliš Póstsins
3 athugasemdir

Fyrsti leikur sumarsins, Eimreišin 3 - Pósturinn 1

29. aprķl 2011 klukkan 11:33
Sumarið byrjaði ekki vel hjá okkar að þessu sinni.

Tap í fyrsta leik á móti liðinu sem við virðumst ekki geta unnið.

Byrjunarliðið var eftirfarandi:

Gunnar Örn var í markinu, Simmi og Dóri aftastir, Konni, Sveinbjörn og Albert á miðjunni og Orri fremstur.

Á bekknum voru svo: Arnar, Jónas og Ström.

 

Komumst við yfir um miðjan fyrri hálfleik með marki frá Orra. Undirritaður fékk boltan á vinstri kanti og sendir fyrir markið (sending sumarsins) beint á pönnuna á Orra sem skallar hann í bláhornið fjær. Vel gert hjá mér! :) 

Stuttu seinna skorar Eimreiðin og svo einhvern tíman í leiknum skora þeir tvö mörk til viðbótar sem enginn man hvernig voru. :)

Tókst þeim að bjarga á línu í seinni hálfleik og einnig tókst þeim að halda markmanninum sínum inná eftir að hann jarðaði Albert inní teig.
Á einhvern óskiljanlegan hátt dæmi dómarinn aukaspyrnu í stað vítis og spjaldiði ekki einu sinni markmanninn. Með furðulegri dómgæslum í sumar. :)

Lokatölur: 1-3

Vangaveltur eftir leik:

  • Munum við einhverntíman vinna Eimreiðina?
  • Mun Arnar geta spilað heilan leik í sumar? :)
  • Getur Simmi hitt markið án þess að skjóta í varnarmenn?
  • Er Orri gay? 
  • Fær liðið 5 bjóra á mann í sumar?

Svör við flestum þessara spurninga kemur sennilega í ljós seinna í sumar. :)

Það þýðir samt ekkert að hengja haus því að næsti leikur er á sunnudaginn klukkan 19:00 á móti ellismellunum í Ufsanum. Er mæting klukkan 18:30.

Staðfestið mætingu hér: http://teamfinder.org/games/476c52cd17bbc020919d


Hér er mynd af manni sem heitir Ufsi og heldur hann á risavöxnu síli. :)

 

Veit ég lítið um þetta Ufsalið nema það að þeir voru í 11 manna utandeildinni fyrir einhverjum 7-8 árum en hættu þar sökum aldurs. Heyrst hefur að meðalaldur liðsins sé 63 ár.

Mætum nú dýrvitlausir í leikinn á matmálstíma á sunnudaginn og sýnum þessum gamalmönnum að við ætlum okkur áfram í bikarnum!

Konni out!

Knattspyrnuliš Póstsins
2 athugasemdir

Fyrsti leikur sumarsins.

27. aprķl 2011 klukkan 07:59
Jæja piltar nú er komið að því að sumardeildin fari af stað.

Er fyrsti leikur okkar á morgun (fimmtudag) á móti erkióvinum okkar í Eimreiðinni. Höfum við ekki riðið feitum hesti á móti þessu liði í gegnum tíðina og höfum við tapað öllum þremur leikjum okkar á móti þeim hingað til.

Hefst leikurinn á morgun klukkan 21:00 mæting 20:30.

Þeir sem eru búnir að staðfesta mætingu eru: Konni, Albert, Orri, Sveinbjörn, Jónas, Dóri, Arnar,
Þeir sem hafa ekki svarað 100% með mætingu eru: Gunni Gunn, Snorri, Maggi, Árni, Gummi, Ström, Gunnar Örn, Simmi,
Meiddir eða komast ekki:  Pálmi, Sjonni,

Pálmi: Er í USA og kemur ekki fyrr en í júní.
Sjonni: Er tognaður á ökkla.


Tók ég mér það bessaleyfi að gera eitt stykki peppvideó fyrir sumarið.

Mæli ég með að þið hækkið græjurnar í botn þegar þið spilið videóið því undir er einhver sú flottasta þjálfararæða sem heyrst hefur. :)



Mæli ég einnig með að menn horfi á þetta fyrir hvern einasta leik í sumar. :)

Að lokum vill ég svo biðja menn um að svara sms-unum frá Alberti og láta vita hvort þið mætið í leiki eða ekki.

Set hérna link með hvernig á að svara sms-um, þar sem greinilega ekki nógu margir kunna það. :)
http://www.ehow.com/how_4889804_respond-text-messages.html

Einnig er hægt að staðfesta sig hérna:
http://teamfinder.org/games/39219563e0c3fa6240b2

Konni kveður, tilbúinn með síman í hendinni.
Knattspyrnuliš Póstsins
5 athugasemdir

Daušarišillinn.

19. aprķl 2011 klukkan 14:29
Í gærkvöldi var dregið í riðla og bikar fyrir sumarið.

Var það enginn annar en yours truly sem sá um dráttinn og var hann ekki af verri gerðinni. :)

Tókst undirrituðum að draga okkur í svokallaðan "dauðariðil"

Svona lítur riðillinn okkar út:

KF Frómas
Hvatberar
Black Barbara
Eimreiðin

Pósturinn
KF Mjöðm
FC Mordor
FC Tjackur
FC Cambodia
RC Rollins


KF Frómas: Er sigursælasta lið Carlsbergdeildarinnar frá upphafi.
Hvatberar: Eru ríkjandi meistarar.
Black Barbara: Höfum við spilað nokkra leiki við þá í gegnum tíðina og alltaf unnið nema núna í vetur þegar þeir rassskelltu okkur.
Eimreiðin: Lið sem við virðumst ekki geta unnið.
KF Mjöðm: Lið sem við höfum alltaf unnið. :)
FC Tjackur: Datt út í 8.liða úrslitum í fyrra.
FC Mordor: Er nýtt lið í deildinni.
FC Cambodia: Er nýtt lið í deildinni.
RC Rollins: Er nýtt lið í deildinni.

Lítur sumar þ.a.l. spennandi út og verður gaman að kljást við bestu lið deildarinnar í sumar.

Fyrsti leikur er á fimmtudaginn 28.apríl á móti Eimreiðinni og eigum við harma að hefna síðan úr síðustu þremur leikjum á mótir þeim.
Hef bara eitt að segja um síðasta leik á móti þeim...... "Dómari, dómari, dómari, dómari, dómari......." :)

Næsti leikur eftir Eimreiðarleikinn er svo 1.maí.

Annars er hægt að nálgast leikjaplanið og stöðuna hérna....http://www.bracketpad.com/openbracket.aspx?ID=1041

Konni kveður ánægður eftir góðan drátt.
Knattspyrnuliš Póstsins
2 athugasemdir