Fyrsti leikur sumarsins, Eimreiðin 3 - Pósturinn 1
Tap í fyrsta leik á móti liðinu sem við virðumst ekki geta unnið.
Byrjunarliðið var eftirfarandi:
Gunnar Örn var í markinu, Simmi og Dóri aftastir, Konni, Sveinbjörn og Albert á miðjunni og Orri fremstur.
Á bekknum voru svo: Arnar, Jónas og Ström.
Komumst við yfir um miðjan fyrri hálfleik með marki frá Orra. Undirritaður fékk boltan á vinstri kanti og sendir fyrir markið (sending sumarsins) beint á pönnuna á Orra sem skallar hann í bláhornið fjær. Vel gert hjá mér! :)
Stuttu seinna skorar Eimreiðin og svo einhvern tíman í leiknum skora þeir tvö mörk til viðbótar sem enginn man hvernig voru. :)
Tókst þeim að bjarga á línu í seinni hálfleik og einnig tókst þeim að halda markmanninum sínum inná eftir að hann jarðaði Albert inní teig.
Á einhvern óskiljanlegan hátt dæmi dómarinn aukaspyrnu í stað vítis og spjaldiði ekki einu sinni markmanninn. Með furðulegri dómgæslum í sumar. :)
Lokatölur: 1-3
Vangaveltur eftir leik:
- Munum við einhverntíman vinna Eimreiðina?
- Mun Arnar geta spilað heilan leik í sumar? :)
- Getur Simmi hitt markið án þess að skjóta í varnarmenn?
- Er Orri gay?
- Fær liðið 5 bjóra á mann í sumar?
Svör við flestum þessara spurninga kemur sennilega í ljós seinna í sumar. :)
Það þýðir samt ekkert að hengja haus því að næsti leikur er á sunnudaginn klukkan 19:00 á móti ellismellunum í Ufsanum. Er mæting klukkan 18:30.
Staðfestið mætingu hér: http://teamfinder.org/games/476c52cd17bbc020919d
Hér er mynd af manni sem heitir Ufsi og heldur hann á risavöxnu síli. :)

Veit ég lítið um þetta Ufsalið nema það að þeir voru í 11 manna utandeildinni fyrir einhverjum 7-8 árum en hættu þar sökum aldurs. Heyrst hefur að meðalaldur liðsins sé 63 ár.
Mætum nú dýrvitlausir í leikinn á matmálstíma á sunnudaginn og sýnum þessum gamalmönnum að við ætlum okkur áfram í bikarnum!
Konni out!
