Pósturinn 5 - Ufsinn 2, næsti leikur.
16. maí 2011 klukkan 14:27
Fyrsti sigur sumarsins er staðreynd. :)
5-2 sigur á móti gamla stórveldinu Ufsanum í 64. liða bikarkeppni Carlsberg.
Markaskorarar í leiknum voru:
Sjonni
Orri
Arnar
Snorri
Albert
Það var allt annað að sjá liðið í þessum leik en í tapleiknum á móti Black Barböru.
Fyrstu sex mínútur leiksins einkenndust af skothríð á mark Ufsans. En gegn gangi leiksins komust þeir 1-0 yfir með frekar klaufalegu marki. Eftir það hrökk gamla póstvélin í gang og setti tvö mörk með stuttu millibili á Ufsann og komu þrjú kvikindi í viðbót í seinni hálfleik. Tókst Ufsanum aðeins að klóra í bakkann með síðustu spyrnu leiksins og voru lokatölur eins og fyrr var komið fram 5-2.
Aldrei þessu vant komumst við áfram í bikarnum eftir Eurovisionkvöld. :)
Ef ég ætti að velja MVP (Most Valuable Player) leiksins þá yrði Simmi fyrir valinu. Lagði hann upp tvö mörk og átti nokkur villt en góð hlaup fram úr vörninni. :)
Endilega kommentið ef þið eruð ósammála með MVP-ið. :)
Vangaveltur eftir leik:
Næsti leikur hjá okkur er síðan á morgun. Er hann á móti liði KF Frómas sem vann bæði bikar og deild í hittifyrra og vann deildina fyrir þremur árum.
Hefst leikurinn klukkan 20:00 og er mæting 19:30.
Hafa úrslitin hjá þeim verið svona í sumar.
FC Mordor-KF Frómas 0-2
KF Frómas-Eimreiðin 0-0
Staðfestið mætingu hér:
http://teamfinder.org/games/c836fca205d10d9770c6
Nú er bara um að gera að halda póstvélinni vel smurðri og koma dýrvitlausir í leikinn á morgun og ná fyrsta sigrinum í riðlinum í sumar.
Set hérna inn mynd af KF Frómas og bið ég menn um sofa með þessa mynd á koddanum sínum í nótt, það ætti að ná upp einbeitingunni hjá okkur. :)

Konni kveður á mánudegi ánægður eftir vel heppnaðan leik í gær.

- Er Arnar búinn að finna markaskónna?
- Getur einhver toppað fallið hans Arnars?
- Er þetta sumar Póstsins í bikarkeppninni?
- Tekst Orra bara að skora úr ólíklegustu færum?
- Úr hverju eru lappirnar á Orra og Sjonna?
Næsti leikur hjá okkur er síðan á morgun. Er hann á móti liði KF Frómas sem vann bæði bikar og deild í hittifyrra og vann deildina fyrir þremur árum.
Hefst leikurinn klukkan 20:00 og er mæting 19:30.
Hafa úrslitin hjá þeim verið svona í sumar.
FC Mordor-KF Frómas 0-2
KF Frómas-Eimreiðin 0-0
Staðfestið mætingu hér:
http://teamfinder.org/games/c836fca205d10d9770c6
Nú er bara um að gera að halda póstvélinni vel smurðri og koma dýrvitlausir í leikinn á morgun og ná fyrsta sigrinum í riðlinum í sumar.
Set hérna inn mynd af KF Frómas og bið ég menn um sofa með þessa mynd á koddanum sínum í nótt, það ætti að ná upp einbeitingunni hjá okkur. :)

Konni kveður á mánudegi ánægður eftir vel heppnaðan leik í gær.
Knattspyrnulið Póstsins