STÓRLEIKUR SUMARSINS!!
Einkenndist spennan fyrir leikinn aðallega útaf því að Sveinbjörn sem er búinn að vera forsprakki og fyriliði Póstliðsins síðustu ár gerði sér lítið fyrir og ákvað að spila með Strumpunum í ár.
Sterk fyrirmæli frá Hr.Abramovich fyrir leik voru að úrslit leiksins skiptu ekki máli heldur átti að DREPA Sveinbjörn!
Mættu menn á völlinn hálftíma fyrir leik......eða svona flest allir, það er orðið frekar slæmt ef menn eru að mæta seinna en Sjonni (nefni engin nöfn) :)
Met fjöldi var mættur til að styðja við bakið á Póstliðinu: 10 manns. :)
Byrjaði leikurinn frekar rólega....Fyrsta færi leiksins fékk Konni og má kalla það dauðafæri, eftir góða fyrirgjöf frá Sjonni dettur boltinn fyrir fætur Konna sem stóð inni í teig, en eins og svo oft áður reyndi Konni að drepa markmanninn með þrumuskoti, hitti hann hvorki markið né markmanninn. Nokkur hálffæri voru síðan eftir þetta en ekkert sem ógnaði marki Strumpanna almennilega. Atli komst næst því að skora þegar þrumuskot hans söng í þverslánni á marki Strumpanna.
Það var ekki fyrr en 7 mínútum fyrir leikhlé að markið kom sem allir póstmenn voru að bíða eftir. Var þar að verki Haukur Erlings var hann þá nýkominn inná og í fyrstu snertingu fær hann boltan inni í teig og setur hann nett í fjærhornið, óverjandi fyrir Klaufastrump í marki Strumpanna.
HÁLFLEIKUR!
Sjonni tók hálfleiksræðuna að sér og hljóðaði hún einhvern vegin svona "Strákar gefið á mig....ég ætla að reyna að klúðra fleiri færum í seinni hálfleik en þeim fyrri." Hálftíma seinna kom í ljós að honum tókst ætlunarverk sitt!!!
Seinni hálfleikur var ekki eins góður hjá Póstliðinu og sá fyrri því menn bökkuðu of mikið á vellinum og hleyptu Strumpum alltof mikið inní leikinn.
Stórleikur hjá Dúóinu aftast, Alberti á miðjunni og Dóra í markinu komu í veg fyrir að Strumpum tókst að setja mark sitt á leikinn.
Skyndisóknum var beitt í seinni hálfleik sem ekkert varð úr....vegna tveggja flækjufóta sem fóru mikinn í þeim. (Haukur og Sjonni þetta eigið þið að taka til ykkar)!
Annars í heildina góður sigur sem hefði átt að verða miklu stærri.......
Jákvæða úr leiknum: Að halda hreinu, að komast aftur á sigurbraut eftir slakt gengi að undanförnu.
Neikvæða úr leiknum: Sveinbjörn er á lífi!
Maður leiksins: Án efa Albert þar sem barátta hans var undirstaðan í sigri liðsins.
Tilþrif leiksins: Lítið var um glæsileg tilþrif í leiknum......Verð samt að segja markið hjá Hauki og ömmukastið hans Dóra í markinu, klobbinn hjá Sjonna þegar hann klobbaði sjálfan sig á línunni hjá marki Strumpanna og að lokum þegar Orri ætlaði að lemja Stóra Strump. :)
Vangaveltur: Hversu hægur er Jónas ef Sveinbjörn stingur hann af? :)
Hvað var úti í sundlaug sem Orri var að reyna að hitta í þessum skotum sínum öllum?
Mun Atla takast að skora?
Er Haukur supersub?
Hvernig er hægt að taka 8 skot og ekki hitt neinu þeirra á markið? (Sjonni)

Þar til næst dömur......Konni kveður. Pís át!!!
4 athugasemdir

