Auglýsing

Dagar í næsta leik

Um okkur!!

  • Nafn: Knattspyrnulið Póstsins
  • Staður: Reykjavík

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Carlsbergdeildin

Liðin sem eru í sama riðli og við í vetur

Könnun

Komumst við upp úr riðlinum í sumar?

Gerast aðdáandi liðsins á Facebook

Leit

Tvær vikur í að Sumardeildin byrji.

07. apríl 2010 klukkan 15:38
Heyrst hefur að stefna hjá Leikni sé að byrja Sumardeildina 22.apríl, sem þýðir að það eru aðeins tvær vikur í að hún byrji.

Verður formannafundur mánudaginn 12.apríl þar sem dregið verður í riðla og í bikarkeppnina.

Ætlum við að reyna að vera með sama hóp og við vorum með í vetur, en munum missa einhverja sterka pósta.

Þeir sem við missum:

Pálmi - Fer norður í sumar. Er Abramovich í samningsviðræðum við hann um að spila með okkur allavegna fram í maí.

Jón - Er í Norge núna að heimsækja ættingja hans Dabba. Eru samningaviðræður að hefjast milli hans og Abramovich um flug fyrir Jón fram og tilbaka í leiki.


Hefur verið tekin ákvörðun um það að taka upp stigakerfi í sumar. :)

Fær stigahæsti maður sumarsins glæsileg verðlaun á lokahófinu okkar.
Og auðvitað fær stigalægsti maður stórglæsileg skammarverðlaun.

+ stig fást fyrir:

Að skora mark = 2 stig.
Að mæta í leik = 1 stig.
Stoðsending = 1 stig.
Að klobba = 1 stig.
Markmaður að halda hreinu = 2 stig.

- stig fást fyrir:

Gult spjald = -1 stig.
Rautt spjald = -2 stig.
Að vera klobbaður = -1 stig.
Að boða komu sína í leik en beila svo = -1 stig.

Nú er bara um að gera að koma sér vel fyrir upp í sófa fram að móti, því eins og reynsla hefur sýnt okkur þá borgar sig að hreyfa sig sem minnst fyrir mót.



Konni kveður með tilhlökkun til sumarsins.
Knattspyrnulið Póstsins
4 athugasemdir

Meistarar Vetrardeildarinnar 2010.

26. mars 2010 klukkan 12:32
Þar sem bloggar.is er búin að ligga niðri síðan á miðvikudaginn þá ætla ég ekki að skrifa mikið um leikinn því ég man ekki neitt hvernig hann var :)

Var það var formsatriði að klára leikinn því vorum við í sterkri stöðu fyrir leikinn. Þurftum við að tapa leiknum og FC Sálin að vinna með meira en þremur mörkum, til að allt færi til fjandans.

Það gladdi okkur á bekknum sem vorum ekki í byrjunarliðinu þegar strax í byrjun lenti FC Sálin undir 2-0, en þeir voru að spila á sama tíma og við.

Stuttu seinna skoraði Árni fyrsta markið fyrir okkur og eftir það var þetta búið. :)
Pálmi bætti við öðru marki stuttu seinna. Þriðja markið setti síðan Jón (hefði verið skandall ef hann hefði ekki skorað í vetur.)
Árni bætti við fjórða markinu og Pálmi síðan því fimmta.

Staðan í hálfleik 5-0.

Í hálfleik var stórskotaliðinu skipt útaf og annað stórskotalið kom inná. :)

Ekki tókst þeim eins vel til og skoruðum við ekki eitt einasta mark í seinni hálfleik heldur fengum við eitt stykki í smettið á okkur.
Skrifast það mark alfarið á Orra í markinu......enda er hann lamaður í skotlöppinni. Eða svo segir hann :) Segi bara svona.....verð að finna einhvern blóruböggul fyrir þessu marki.

Lokatölur í leiknum 5-1.

Endaði leikurinn hjá FC Sálinni 4-3 fyrir þeim en það kom ekki að sök því við vorum búnir að klára okkar leik.

Og þ.a.l. urðum við Meistarar Vetrardeildarinnar 2010.

Stórglæsilegt hjá ykkur drengir mínir og vil ég óska ykkur (okkur) til hamingju með þetta. Áttum þetta svo sannarlega skilið.

Man ég bara eftir einum lélegum leik hjá okkur í vetur og var hann á móti Banönum. Verð að segja að við vorum skelfilegir í þeim leik en við rifum okkur upp eftir þann leik og sigrum alla leiki eftir skelfilegt 9-2 tap.

Get ekki sagt að við höfum verið lélegir í 3-2 tapinu á móti Prinsunum, vorum komnir í góða 2-0 stöðu og vorum að sækja vel á þeirra sex-einn kerfi. Fengu þeir þrjú tækifæri og nýttu þau vel.

Skemmtilegt að segja frá því að við vorum sennilega eina liðið í vetur sem tók ekki eina einustu æfingu saman. Mættum bara hálftíma fyrir leik og spiluðum okkar sambabolta. :)



Vill ég þakka ykkur fyrir góðan vetur og vonandi verður sumarið eins gott hjá okkur þó svo að við munum sennilega missa nokkra af okkar bestu mönnum :(


Vantar nokkra af sterkum pólum sem spiluðu með okkur í vetur á þessa mynd.


Bikarinn góði sem við unnum.

Konni kveður Vetrardeildina með söknuði og hlakkar til Sumardeildarinnar.
Knattspyrnulið Póstsins
3 athugasemdir

Módelið

24. mars 2010 klukkan 08:17
Í tilefni þess að það er leikdagur og svo var ég reyndar búinn að lofa Árna fyrir löngu að henda inn videói af kvikindinu, þá held ég að það sé best að gera það núna.

Reyndar er hann ekki að gera mikið annað í videóinu en að éta boltann á miðjunni. Og var þetta allt í sama leiknum :)



Gengur hann undir nöfnunum "Módelið" og "Hr. Adidas" í liðinu. Og ég held að það hafi fáir verið klobbaðir eins oft í liðinu eins og hann. :)

Lítur hann á sig sem blöndu af Ronaldinho, Kaka, Messi, Ronaldo, Cannavaro og Zoff. Þannig að þarna er mjög fjölhæfur leikmaður á ferð. (Að hans mati)

Konni kveður á leikdegi syngjandi "Take me out the ball game"
Knattspyrnulið Póstsins
4 athugasemdir

Síðasti leikur vetrarins.

23. mars 2010 klukkan 08:36
Jæja þá er komið að síðast leiknum hjá okkur í vetur.

Erum við í frekar góðri stöðu fyrir þennan síðasta leik. Það þarf eitthvað mikið að gerast til þess að við klúðrum bikarnum úr höndum okkar.

Dugir okkur jafntefli í þessum leik til að hampa bikarnum. Ef við töpum með einu marki þá þarf FC Sálin að vinna sinn leik með þremur mörkum eða meira til að vinna deildina, þannig það má segja að þetta sé í okkar höndum.

Leikurinn á morgun er á móti Íslenska Gámafélaginu og hefst hann stundvíslega klukkan 19:00, mæting er klukkan 18:30.

Hefur þeim ekki gengið neitt sérstaklega vel í deildinni í vetur og sitja þeir í 13.sæti deildarinnar með 11 stig.

Úrslitin hjá þeim hafa farið svona:

High Flyers - Íslenska Gámafélagið         3-2
Íslenska Gámafélagið - FC Pump            0-2
Fuglar frelsisins - Íslenska Gámafélagið   1-3
Íslenska Gámafélagið - Dynamo             3-0
SÁÁ - Íslenska Gámafélagið                    4-4
Íslenska Gámafélagið - Old Boys Álftanes 3-7
Bananar - Íslenska Gámafélagið              4-1
Innri fegurð - Íslenska Gámafélagið         3-1
Íslenska Gámafélagið - FC Sálin              1-4
FC Bumbi - Íslenska Gámafélagið            2-1
Íslenska Gámafélagið - Dynamo Iceland   2-5
Slökkviliðið - Íslenska Gámafélagið           1-5
Íslenska Gámafélagið - Prins Valiant         1-2
KF Mjöðm - Íslenska Gámafélagið             1-1

Ætlar Albert að sjá um smá upphitun fyrir leik og að þessu sinni ætla ég að leyfa Sveinbirni að velja lagið sem hann ætlar að taka fyrir leik.

Það er tvennt sem heyrst hefur á göngum Póstmiðstöðvarinnar og það er að Hr.Abramovich ætli að mæti í takkaskóm og er hann búinn að tala um að setja sjálfan sig í framherjann. Það er spurning hvort við leyfum honum það ekki gegn einhverjum góðum veitingum eftir leik. :)
Hitt er að Jónas "Gjallarhornið" ætli ekki að láta heyra neitt í sér í leiknum á morgun. :P

Þeir sem eru búnir að staðfesta mætingu eru: Konni, Albert, Sveinbjörn, Orri, Jónas, Gunnar Bergmann, Dóri, Bubbi, Dabbi, Árni (Spilar fyrri hálfleik), Maggi Hafdal, Matti, Gunnar Örn, Maggi, Pálmi (Spilar fyrri hálfleik), Jón,
Þeir sem hafa ekki svarað 100% með mætingu eru: Hannes, Haukur, Atli, Gummi,
Meiddir eða eru bara yfir höfuð haugar: Grétar, Unnar, Sjonni,

Grétar: Tókst að komast í gegnum deildina án þess að mæta í leik. :)
Unnar: Sneri sig í fótbolta um helgina, greinilega ekki að fatta það að við æfum ekki bolta. :P

Viljum við sjá sem flesta í þessum leik þar sem þetta er nú síðasti leikurinn í vetur.

Nú er bara um að gera að skíta í lófana og klára leikinn á morgun og hirða þessa dollu. :)



Ég sat nú einu sinni fyrir í bækling fyrir Íslandspóst, afhverju var ég ekki fenginn til að vera á nærfötunum í þeirri auglýsingu? Tja maður spyr sig?


Konni kveður síðustu viku sem hann er 20 og eitthvað ára gamall. :S
Knattspyrnulið Póstsins
3 athugasemdir

Highlights úr leiknum okkur á móti KF Mjöðm.

17. mars 2010 klukkan 08:13
Held það sé fínt að nota þessa pásu sem við erum í og pósta einu highlights videói.

Að þessu sinni er það videó úr leiknum á móti KF Mjöðm sem við unnum 13-3. :)

Var þetta fyrsti leikurinn sem við mættum með cameru á leik og eins og sést þá hefur myndatakan eitthvað aðeins skánað síðan þessi leikur var.......

Náðist ekki einu sinni helmingurinn af mörkunum sem skoruð voru í leiknum.

Hérna er svo videóið :)



Konni kveður á miðvikudegi segjandi það er bara vika í síðasta leik!
Knattspyrnulið Póstsins
6 athugasemdir

Highlights úr leiknum á þriðjudaginn.

11. mars 2010 klukkan 08:22
Var ég búinn að lofa einhverjum góðum punktum úr leiknum okkar á móti Old Boys Álftanes.

Hérna koma þeir, gjörið svo vel :)



Vill ég síðan biðja menn um vera ekki mikið í því að taka "múvið" hans Matta. Er þetta þaulæft "múv" og ekki hver sem er sem getur þetta. :)

Annars geta ég horft endalaust á þessi tilþrif hans.....fær mig alltaf til að hlæja. :) Ekkert illa meint Matti minn.

Konni kveður á fimmtudegi, orðinn þyrstur í bjór.


Knattspyrnulið Póstsins
5 athugasemdir

Old Boys Álftanes 2 - Íslandspóstur 3

10. mars 2010 klukkan 11:03
Það voru ekki gamlingjar eins og nafnið bendir til kynna, heldur "ekki svo" fílhraustir ungir strákar sem mættu til leiks þegar við áttum leik við Old Boys Álftanes.

Með sigri í leiknum mátti segja að önnur hendin væri komin á bikarinn fyrir Vetrardeildina.

Og það var greinilegt að menn voru tilbúnir að fórna meistaradeild þetta kvöldið til þess að spila leikinn. :)

Byrjunarliðið var: Orri í markinu, Matti og Jónas aftastir, Jón, Pálmi og Árni á miðjunni, Albert fremstur.
Á bekknum voru svo: Dóri, Gunnar Örn, Konni, Sveinbjörn, Maggi Hafdal.

Albert var greinilega farið að þyrsta í mörk og setti sjálfan sig fremstan í þessum leik. Og virkaði það svona helvíti vel :)

Byrjuðum við leikinn frekar rólega, og vorum mikið í því að elta boltann. Létu "gamlingjarnir" boltan ganga vel á milli sín á milli teigs og miðju en án þess að ógna markinu okkar að einhverju viti. Enda þéttur pakki þarna aftast hjá okkur :)

Það var ekki fyrr en Gummi Dreifari mætti á svæðið að fyrsta markið lét dagsins ljós.  Fer Jón í tæklingu rétt fyrir aftan miðju, vinnur boltann og liggjandi eins og fiskur á þurru landi nær hann að spyrna boltanum yfir miðjuna. Kom þar battasenterinn askvaðandi og þrumar varnarmann "gamlingjanna" niður, hirðir boltann og lætur vaða á markið......kom eitthvað fát á markmanninn við þetta skot og hoppar hann til hliðar, enda sennilega óvanur því að fá skot BEINT á sig. Söng boltinn í netinu. 1-0, Glæsilega gert hjá Jóni. :) Og jú Alberti líka.
Áfram hélt leikurinn og lítið gerðist í leiknum næstu 5.mínútur.
Það var ekki fyrr en Matti fór að ógna okkar marki með einhverjum MC Hammer múvi inní teig. Flottari múv hef ég ekki séð á vellinum og uppúr því skoruðu "gamlingjarnir".

Gamla póstvélin lét þetta múv hans Matta ekki hafa áhrif á sig og stuttu seinna fær undirritaður sendingu út á hægri kant, sendi ég fastan bolta fyrir, beint í battasenterinn hann Albert sem dettur á boltann og nær að mjaka honum inn. Stórglæsilega gert hjá mér. :) Tók Óli hjá Leikni mig á tal eftir leikinn og hafði hann orð á því að þetta hafi sennilega verið fallegasta stoðsending sem gefin hefur verið á Leiknisvellinum. Þakkaði ég honum hrósið með karlmannlegu faðmlagi.

Staðan í hálfleik: 2-1

Man ég ekkert hvernig seinni hálfleikur var. :)

Man bara að þriðja markið okkar kom eftir góðan undirbúning hjá Jóni. Vinnur hann boltann á miðjunni, geysist upp völlinn eins og gasella á fengitíma, sendir boltan yfir til vinstri þar sem Albert hamrar boltann í fjærhornið.
Staðan orðin 3-1 og við komnir í þægilega stöðu, þar sem Sálin var að gera jafntefli á sama tíma 1-1 á móti Slökkviliðinu.

Tveimur mínútum fyrir leikslok fengum við mark á okkur. Síðustu tvær mínútur leiksins liðu eins og 10.mínútur. Dómarinn leiksins sem nota bene var maður leiksins ætlaði aldrei að flauta þenna blessaða leik af.

Skömmu áður en við fengum markið á okkur komst Sálin yfir 2-1 í leiknum á móti Slökkviliðinu. Og endaði leikurinn þannig.

Lokatölur í okkar leik urðu 3-2. Góður sigur sem heldur okkur á toppnum með þriggja stiga forystu þegar einn leikur er eftir.



Bikarinn sem er í verðlaun fyrir Vetrardeildina.



Nenni ekki að hafa þetta lengra að þessu sinni........er að hugsa um að reyna að klippa smá highlights úr leiknum í gær og pósta því hérna á morgun. :)

Í þeim highlights verður meðalannars:

* Fyrsta markið hans Alberts.
* Klobbinn hans Orra í markinu.
* Múvið hans Matta.
* Seinasta markið hans Alberts.
* Markskotið hans Magga með bakinu.
* Tæklingar frá Jónasi
* Svo eitthvað meira skemmtilegt sem gerðist í leiknum.
:)

Konni kveður að sinni, með aðra hendina á bikarnum og hina ofaní buxunum. :)
Knattspyrnulið Póstsins
10 athugasemdir

Fjórtándi leikur!

08. mars 2010 klukkan 10:48

Þar sem ég var búinn að skrifa færslu fyrir þennan leik á móti gjaldþrota liðinu Old Boy Álftanes, ætla ég að hafa þessa frekar stutta.

Leikurinn hefst á morgun stundvíslega klukkan 21:00 og er mæting 20:30.

Auðvitað stjórnar Albert upphitun og Sveinbjörn tekur sama lag og ég var búinn að pósta inn hérna fyrr um daginn. Hann er nú búinn að hafa nægan tíma til þess að æfa þetta lag.

Er þetta næst síðasti leikur vetursins. Eftir þennan leik erum við komnir í tveggja vikna pásu og verður síðasti leikur spilaður 24.mars.

Þeir sem eru búnir að staðfesta mætingu eru: Konni, Albert, Maggi Hafdal, Árni, Sveinbjörn, Orri, Bubbi, Gunnar Örn, Jónas, Dóri, Jón, Matti,
Þeir sem hafa ekki svarað 100% með mætingu eru: Sjonni, Pálmi, Gunnar Bergmann, Hannes,
Meiddir eða eru bara yfir höfuð haugar: Haukur, Atli, Gummi, Dabbi, Unnar, Maggi, Grétar,

Haukur: Er að dómarast fyrir KSÍ.
Atli: Er að gambla í póker þegar leikur er, talaði hann um það að deila vinningnum með liðinu.
Gummi: Er á dansæfingu á sama tíma og leikurinn er.
Dabbi: Ætlar að manna cameruna :)
Unnar: Er veikur.
Maggi: Er að læra.
Grétar: Er enn að djöflast í þessum blessaða handbolta.

Síðan er spurningin um það hvort við lyftum okkur ekki eitthvað upp á laugardaginn?
Förum út að borða og fáum okkur aðeins í aðra tánna.
Ég sendi út boð á facebook útaf þessu fyrir svolitlu síðan, endilega svarið því fyrir miðvikudaginn svo ég geti pantað einhvern stað.


Einu stærstu ástæður fyrir gjaldþroti Álftaness er sundlaugin og líka fluttu Sjonni og Begga þangað. En það er lítið tala um það í fréttunum.

Vill ég benda á það að þetta lið kemur úr heimabæ þeirra Sjonna,Unnars og Bubba, og veit ég að þeim langar ekkert meira en að sigur úr þessum leik.

Konni kveður á mánudegi, hress eftir "non drinking" helgi.
Knattspyrnulið Póstsins
4 athugasemdir

Kæran.

07. mars 2010 klukkan 21:37
Var núna rétt áðan að fá skemmtilegt símtal frá honum Óla hjá Leikni.

Kærðum við leikinn sem við spiluðum á móti SÁÁ.

Snýst málið um að SÁÁ notaði Andra Stein Birgisson í leiknum á móti okkur. Og samkv. reglum Utandeildarinnar þá eru leikmenn bannaðir sem spiluðu í efstu og 1.deild á Íslandi á tímabilinu sem var að ljúka. 

Eins og sést á síðu KSÍ þá spilaði hann 8 leiki með Fjölni á síðasta tímabili.

Vorum við að ræða þetta eftir leikinn á þriðjudaginn þegar einn leikmaður SÁÁ kom upp að mér og Óla og sagði að honum þætti ekkert skrítið ef við myndum kæra leikinn.

Svipað mál átti sér stað fyrr í vetur þegar að Sálin kærði FC Pump vegna ólöglegs leikmanns í leik sem þeir töpuðu 3-0. Dæmdist hann Sálinni í vil og fóru þeir með 3-0 sigur útúr leiknum.

Jafnt skal vera á með öllum liðum. :D
 
Voru það glögg augu Árna og Bubba sem tóku eftir þessum leikmanni hjá SÁÁ.

Þannig að leikurinn sem endaði 0-0 dæmist okkur í hag 3-0. Og fáum við 3 stig í hús í staðinn fyrir bara eitt. :)

Erum við á toppnum með þriggja stiga forystu á Sálina þegar tveir leikir eru eftir, og nú er bara að klára þá með stæl og taka dolluna í endan á mars :)


Svona leið okkur eftir leikinn á móti SÁÁ, þess vegna kærðum við hann Laughing

Konni kveður á sunnudagskvöldi, spenntur fyrir komandi fótboltaviku.
Knattspyrnulið Póstsins
2 athugasemdir

Skoðanakönnun.

05. mars 2010 klukkan 15:45
Held það sé málið að skipta um skoðanakönnun hérna mánaðarlega.

Úrslit í síðustu könnun eru svona:

Skotlöppin?

* Réttfættur - 5 atkvæði - 18%
* Örfættur - 2 atkvæði - 7%
* Jafnfættur - 7 atkvæði - 25%
* Miðfóturinn - 2 atkvæði - 7%
* Nota bara hausinn - 2 atkvæði - 7%
* Kann ekki að skjóta - 10 atkvæði - 36%

Svo virðist vera að 10 manns sem kusu í síðasta mánuði kunni ekki að skjóta, eða 36% þeirra sem kusu. Greinilegt að við þurfum að taka skotupphitun fyrir leiki. :D

Kemur á óvart að 2 geta skotið með miðjufætinum. Legg ég til að þeir sýni þessi tilþrif í næsta leik. :)

Svo virðist líka var að 2 fatlaðir hafi kosið, þá er ég að meina þessir örfættu. :P 

Læt fylgja videó af mönnum sem virðast ekki kunna að skjóta. ;)

Gaman að sjá að hversu stóran part Arsenal menn spila í þessu videói. :) 

Ný könnun komin inn og hvet ég alla að kjósa í henni.

 

Konni kveður á föstudegi og býður góða helgi.

 

Knattspyrnulið Póstsins
1 athugasemd